mynd2.jpg

SONG LYRICS

Jörðin, himininn og við
við snúumst
hring eftir hring,
hring eftir hring.

Þú og ég, við vorum
ein í heiminum
en ekki lengur,
ekki lengur.

Ég vissi alltaf að,
það væri eitthvað
að.

Ekki lengur, ekki lengur, ekki lengur, ekki lengur.


by Annalísa Hermannsdóttir.


starandi á mig,
lýsandi á mig,
blindandi mig

ég og þú

starandi á mig,
lýsandi á mig,
blindandi mig

ég og þú
hlið við hlið

ég og þú
hlið við hlið
skuggamyndir

ég og þú
skuggamyndir
ekki lengur, ekki lengur, ekki lengur

by Annalísa Hermannsdóttir.


Augun mín og augun þín,
ó þá fögru steina.
Mitt er þitt og þitt er mitt,
þú veist hvað ég meina.

Bláu augun þín
blika djúp og skær,
lýsa leiðina mína
líkt og stjörnur tvær.

Þó að liggi leið
mín um langan veg,
aldrei augnanna þinna
eldi gleymi ég.

Þau minna á fjallavötnin fagurblá,
fegurð þá ein ég á.

Augun mín og augun þín,
augun mín og augun þín,
augun mín og augun þín,
augun mín og augun þín.


Vísur Vatnsenda-Rósu by Rósa Guðmundsdóttir.
Bláu augun þín by Ólafur Gaukur Þórhallsson.


Mér líður
eins og ég líði
eins og tíminn
með þér
um nóttina.


by Annalísa Hermannsdóttir.


Haltu í mig

Þú þarft ekki að elska mig
haltu bara utan um mig
og snertu mig
eins og þú viljir mig
horfðu á mig
eins og þú þráir mig.

Er þú liggur hér við hlið mér
ekkert annað í þessum heimi
nema þú og ég
horfi í augun á þér.
Mun ég gleyma augunum á þér?

Þú horfir á mig...

Haltu í mig, haltu um mig, haltu fast.
Taktu í mig, taktu um mig, taktu af.
Haltu í mig, haltu um mig, haltu fast.
Vertu hér, vertu hér, hjá mér í nótt.

Þú þarft ekki að elska mig
og ég þarf ekki að elska þig.
Haltu bara utan um mig
aðeins lengur.
Og svo ferðu
þegar sólin kemur upp.

Þú horfir á mig...

Haltu í mig, haltu um mig, haltu fast.
Taktu í mig, taktu um mig, taktu af.
Haltu í mig, haltu um mig, haltu fast.
Vertu hér, vertu hér, hjá mér í nótt.


by Annalísa Hermannsdóttir.


Út í geim

Ég sá það strax er ég hitti þig
þú vildir mig, ég vildi þig.
Við gætum verið tvö saman
og gert allt sem okkur sýnist.
Viltu ekki reyna?

Fljúgum út í geim,
flýjum þennan heim.
Fljúgum út í geim,
aldrei aftur heim, bara við tvö, alein.

Þú segir þú sért ekki dansari,
en samt hreyfir þú þig í takt við mig.
Við gætum verið samferða
og gert allt sem okkur sýnist.
Viltu ekki reyna?

Fljúgum út í geim,
flýjum þennan heim.
Fljúgum út í geim,
aldrei aftur heim, bara við tvö, alein.


by Annalísa Hermannsdóttir.


Ég drekk í mig blekkingu,
efast um þig, efast um mig.
Hvernig á ég að vita hvað er satt
og hvað er rétt?
hvað snýr upp og hvað niður -
ég er svo ringluð.

Segðu mér það sem þú hugsar
svo ég geti sofið, sofið rótt.

Sofið, sofið rótt.
Sofið, sofið rótt í nótt.
Talaðu við mig
svo ég geti sofið, sofið rótt.

Ég skil ekki hvað þú vilt þegar þú horfir á mig.
Ég get ekki lesið í þennan augnsvip.

Segðu mér það sem þú hugsar
svo ég geti sofið, sofið rótt.

Sofið, sofið rótt.
Sofið, sofið rótt í nótt.
Talaðu við mig
svo ég geti sofið, sofið rótt.

Ég skil ekki hvað þú vilt þegar þú horfir á mig. Ég get ekki lesið í þennan augnsvip. Ég skil ekki hvað þú vilt þegar þú horfir á mig. Ég get ekki lesið í þennan augnsvip. Ég skil ekki hvað þú vilt þegar þú horfir á mig. Ég get ekki lesið í þennan augnsvip.

Sofið rótt